Kynntu þér hvernig tengigeta, þægindi og öryggisbúnaður gera XC90 jeppa einstakan í sinni röð.
Google Map er innbyggt í XC90 og þú færð rauntímaupplýsingar um umferð og sjálfvirkar breytingar á leiðsögn sem gera þér kleift að ná áreynslulaust á áfangastað.
Notaðu handfrjálsa stjórnun til að spjalla við Google í XC90. Þú getur fengið leiðarlýsingu, notið afþreyingar og verið í sambandi við vini, fjölskyldu og vinnufélaga – þú segir einfaldlega „Ok Google“ til að hefjast handa.
Vertu í tengslum við þitt stafræna líf. Með Google Play í XC90 bílnum þínum geturðu notið forrita og þjónustu sem gera hverja ferð skemmtilegri og þægilegri.
Google Map er innbyggt í XC90 og þú færð rauntímaupplýsingar um umferð og sjálfvirkar breytingar á leiðsögn sem gera þér kleift að ná áreynslulaust á áfangastað.
Öll gögn eru innifalin og stafræni þjónustupakkinn okkar er þægileg leið til að samræma líf þitt, lífið með XC90 og stafræna lífið.
Þú færð uppáhaldsforritin þín, eins og Google Assistant, Google Map og fleira á Google Play, beint í bílinn til að tryggja þér góða, einstaklingsmiðaða og óaðfinnanlega akstursupplifun.
Fínstilltu þægindin og fáðu meira út úr Volvo-bílnum þínum. Stafræni þjónustupakkinn okkar býður m.a. upp á fjarþjónustu í gegnum Volvo Cars appið.
XC90 fylgir fjögurra ára áskrift að stafræna þjónustupakkanum. Að því tímabili liðnu taka nýir skilmálar við.
XC90 fylgir fjögurra ára áskrift að stafræna þjónustupakkanum. Að því tímabili liðnu taka nýir skilmálar við.
Háþróað lofthreinsitækið í glænýju loftgæðakerfi okkar síar burt allt að 95% allra skaðlegra agna sem berast inn í farþegarýmið. Þú og farþegar þínir getið notið betri og heilsusamlegri loftgæða, óháð skilyrðum utandyra. Jafnvel er hægt að vakta svifryks- og frjókornastöðuna fyrir utan bílinn.
Virkur undirvagn bílsins með loftfjöðrun stillir stöðugt aksturshæð og aðlagar demparana til að auka stöðugleika og tryggja kraftmikinn og fágaðan akstur með hámarksorkunýtni á miklum hraða. Þegar aðstæður krefjast þess geturðu valið torfærustillinguna til að auka hæð frá jörðu.
Háþróuð akstursöryggistækni hjálpar til við að halda öruggri fjarlægð frá öðrum bílum með því að stilla aksturshraðann, halda bílnum á miðri akrein, gefa merki um að taka aftur af stað og jafnvel stöðva bílinn ef ökumaður verður óökufær.
Sjónlínuskjár gerir þér kleift að fylgjast með hraðanum, fara eftir nákvæmri leiðsögn, svara símtölum og fleira. Allt þetta án þess að líta af veginum. Birtustig sjónlínuskjásins lagar sig sjálfkrafa að birtuskilyrðum og þú getur stillt kerfið að þínum eigin óskum.
Háþróað lofthreinsitækið í glænýju loftgæðakerfi okkar síar burt allt að 95% allra skaðlegra agna sem berast inn í farþegarýmið. Þú og farþegar þínir getið notið betri og heilsusamlegri loftgæða, óháð skilyrðum utandyra. Jafnvel er hægt að vakta svifryks- og frjókornastöðuna fyrir utan bílinn.
Hannað fyrir þá sem leitast eftir framúrskarandi hljómgæðum. Þetta 1.400 W hágæðahljóðkerfi er í boði sem aukabúnaður og gerir tónlistina tærari og raunverulegri, fínstillir smáatriði og upplausn og gerir þér kleift að heyra lagið alveg eins og listamaðurinn vildi að það hljómaði.
19 hátalarar og nýstárlegur bassahátalari sem eru lagaðir nákvæmlega að byggingu farþegarýmisins í Volvo skila glæsilegum surround-hljómi, sama hvar þú situr. Heildstæð tónlistarupplifun sem þú nýtur í botn.
Einstök „Room Transformation“-tækni endurskapar hljóðvist tiltekins herbergis. Þú velur milli fjögurra mismunandi stillinga, „Studio“, „Individual Stage“, „Concert Hall“ og „Jazz Club“.
BLIS-kerfið okkar fyrir blindsvæði aðstoðar þegar skipt er á milli akreina. Ef hætta er á árekstri við önnur ökutæki á aðliggjandi akrein getur BLIS-kerfið gripið mjúklega í stýrið og aðstoðað þig við að halda bílnum og farþegunum öruggum á sínum stað.
Ef bílinn byrjar að reka yfir miðlínuna skapast hætta á árekstri við bíl sem kemur á móti. Bíllinn getur greint þetta og leiðrétt og komið þér aftur á réttan kjöl á veginum.*
Hugvitssamleg öryggisaðstoð gerir þér kleift að greina og forðast ákeyrslu á önnur ökutæki, gangandi vegfarendur, hjólreiðafólk og stór dýr. Þessu er náð með því að vara fyrst ökumanninn við og beita því næst hemlum ef ökumaðurinn bregst ekki við.**
360° yfirsýn fjögurra myndavéla og hliðarskynjarar þessa kerfis auka yfirsýn yfir hluti til hliðar við bílinn og auðvelda þér að leggja bílnum, óháð því hversu þröngt stæðið er.
Umferðarskynjari með sjálfvirkri hemlun aðstoðar ökumanninn þegar bakkað er við takmarkað útsýni. Kerfið getur greint ökutæki sem nálgast bílinn frá hliðum og beitt sjálfvirkri hemlun ef með þarf.***
Öryggisaðstoðartæknin okkar getur aðstoðað þegar beygja þarf þvert á aðkomandi umferð með sjálfvirkri hemlun ef hætta er á árekstri.
BLIS-kerfið okkar fyrir blindsvæði aðstoðar þegar skipt er á milli akreina. Ef hætta er á árekstri við önnur ökutæki á aðliggjandi akrein getur BLIS-kerfið gripið mjúklega í stýrið og aðstoðað þig við að halda bílnum og farþegunum öruggum á sínum stað.
* Akstursaðstoðarkerfi koma ekki í stað athygli og dómgreindar ökumanns. Stýrisaðstoð er virk þegar ökutækið er á milli 60 og 140 km/klst.
** Ökutæki, gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk sem stefnir í sömu átt og bíllinn greinast á vissum hraða og við vissar aðstæður. Skynjarakerfi krefjast þess að hlutir séu upplýstir og að fram- og afturljós bílsins séu kveikt eftir að dimma tekur. Ökumaðurinn einn ber ábyrgð á öryggi við akstur öllum stundum.
*** Stuðningsaðgerðir koma ekki í staðinn fyrir athygli og dómgreind ökumanns. Virkni umferðarskynjara kann að vera takmörkuð við vissar aðstæður. Hemlaaðstoð er aðeins virk á hægum hraða.
Upplifðu enn rafmagnaðra afl með háþróuðu tengiltvinn rafbílunum okkar.
Upplifðu enn rafmagnaðra afl með háþróuðu tengiltvinn rafbílunum okkar.
Búnaður sem er sýndur er hugsanlega ekki staðalbúnaður eða í boði með öllum útfærslu- eða aflrásavalkostum.
Google, Google Play og Google Map eru vörumerki Google LLC.