ÖRYGGI
Allt frá áttunda áratug síðustu aldar hefur Volvo Cars lagt sérstaka áherslu á öryggi barna í bílum sínum þar á meðal með hönnun barnabílstóla og sessa.
Við hugsum um alla
Öryggi fyrir alla er efst á okkar lista, fyrir ökumann, farþega, aðra akandi vegfarendur og síðast en ekki síst gangandi vegfarendur. Við höfum frá upphafi verið leiðandi aðili í öryggi og þar eru börnin ekki undanskilin.
Hannaður fyrir lífið
Okkar einstaka nálgun á öryggi barna felur í sér prófanir sem byggðar eru á raunverulegum aðstæðum í umferðinni. Af þeim sökum mælum við sérstaklega með bakvísandi barnabílstólum fyrir börn fjögurra ára og yngri.
Öryggi barns í framsæti
Í takt við framfarir í loftpúðatækni höfum við uppfært tilmæli okkar í tengslum við öryggi barna í framsæti. Tilmælin ráðast af árgerðum Volvo-bíla.
Barnasæti
Barnabílstólarnir okkar eru klæddir áklæði sem er að 80% úr náttúrlegu ullarefni með góðri öndun og í þeim sameinast öll okkar þekking á öryggi og falleg skandinavísk hönnun.
Rík hefð fyrir nýjungum tengdum öryggi barna
Við höfum verið leiðandi í öryggi barna og rannsóknum því tengdum frá því á áttunda áratug siðustu aldar. Kynntu þér mikilvægustu nýjungarnar okkar í öryggi barna í gegnum tíðina.
Næsta kynslóð öryggis í innanrými fyrir börn
Mistök eru órjúfanlegur þáttur tilverunnar. Þess vegna höfum við innleitt skynjara sem skanna farþegarýmið til að koma í veg fyrir að smábarn eða gæludýr sé skilið eftir í bílnum.
Allar Recharge-gerðir
Öryggisbúnaður Volvo Cars kemur til viðbótar öruggum akstri og honum er ekki ætlað að leyfa eða hvetja til einbeitingarleysis, gáleysis eða annars óöruggs eða ólöglegs aksturs. Þegar upp er staðið er ökumaðurinn alltaf ábyrgur fyrir því hvernig bílnum er stjórnað. Búnaður sem hér er lýst kann að vera aukabúnaður og framboð hans kann að vera breytilegt á milli landa.